|
| |
| |
|
 |
Íeskur
úlfhundur.
Lýsing
Írski Úlfhundurinn er vingjarnlegur, góður og blíður að
eðlisfari. Þessi mjög svo djarfi hundur, með ótrúlegt
úthald og styrk, er blíður þegar gælt er við hann, en
getur einnig verið grimmur þegar honum er ögrað. Hann
veiðir en úlfa og villigelti og er einnig góður
varðhundur vegna stærðarinnar. Rólegur og blíður við
börn, hann verður mjög háður eiganda sínum. Þjálfa skal
hann af ákveðni og skynsemi. það tekur tvö ár fyrir
Írska Úlfhundinn að ná fullri stærð.
Uppruni
Írski Úlfhundurinn, stærsti mjóhundur heims, gæti verið
komin af hundum sem bárust til Bretlands með keltnesku
fólki eða frá gamalli tegund innfæddri á Írlandi. Sumir
trúa því að hann sé útkoma af blöndu Írska fjárhunda við
Arabíska Greyhound. en aðrir trúa að Deerhound var
notaður til að skapa tegundina. Ræktaður til að veiða og
drepa úlfa. Írski Úlfhundurinn varð næstum útdauður í
kringum 1800, á sama tíma og úlfurinn. árið 1860, ákvað
Kapteinn G. Graham, að endurlífga tegundina með því að
blanda síðustu hundunum við Deerhound og jafnvel Great
Dane, Borzoi og aðrar tegundir. Irish Wolfhound var
viðurkenndur af Breska hundaræktarfélaginu árið 1897.
Umhirða
Vikuleg burstun.
Hreyfing
Írski úlfhundurinn þarf nokkuð mikla hreyfingu, og
hentar honum ekki að búa í stórborg. Hann þarf að hlaupa
oft á opnu, víðu svæði.
Leyfilegir litir
Grár, bröndóttur, kastaníubrúnn, svartur, perluhvítur
eða allir aðrir litir sem leyfðir eru á deerhound.
Staðreyndir
Upprunaland: Írland
Upprunartími: Fornöld/1800
Fyrstu not: Veiðihundur v/ úlfaveiðar
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 6-10 ár
Önnur nöfn: Irish Wolfhound
Hæð á herðakamb
Rakkar að minnsta kosti 79 sm. (helst af öllu 81 - 86
sm). Tíkur Að minnsta kosti 71 sm.
Þyngd
Rakkar að minnsta kosti 54 kg. Tíkur að minnsta kosti
40,5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|