|
| |
| |
|
 |
Íslenskur
fjárhundur.
Lýsing
Íslenski Fjárhundurinn er norrænn hundur og eini
þjóðarhundur okkar Íslendinga. Hann er afbragðs
smalahundur sem þolir nánast hvaða veðráttu sem er.
Íslendingurinn er þolgóður og mjög fimur og er m.a.
notaður til reka og safna saman búfénaði. Einnig er hann
afbragðs félagi sem er ávallt brosandi. Harðger og
vinalegur hundur sem á það til að gelta. Íslenski
hundurinn er viljugur, námfús, forvitinn og fjörmikill.
Til eru tvö afbrigði, snöggt hárafar og langt hárafar
(Lubbi).
Uppruni
Íslenski fjárhundurinn er mjög gamallt hundakyn,
jafngamall búsetu á landinu. Litlu munaði að hann dæi út
og voru einungis nokkrir hundar eftir þegar hafist var
handa um markvissa ræktun hans árið 1967. Íslenski
hundurinn er skildur Norska Búhundinum.
Umhirða
Bursta þarf yfir Íslenska hundinn reglulega, sérstaklega
síðhærða afbrigðið. Klippa þarf klær eftir þörfum. Böðun
eftir þörfum.
Hreyfing
Íslenski hundurinn þarf daglega góða hreyfingu. Hann
nýtur þess að vera úti í öllum veðrum.
Leyfilegir litir
Litbrigði eru með ýmsu móti, en þó skal einn aðallitur
ávallt vera ríkjandi. Aðallitir eru: Gulur í ýmsum
blæbrigðum, allt frá ljósgulum lit til dökkrauðguls
litar. Leirhvítur. Mórauður. Grár. Svartur.
Staðreyndir
Upprunaland: Ísland
Upprunatími: 800
Fyrstu not: Fjárhundur
Í dag: Fjárhundur og félagi
Lífsskeið: 12 ár
Önnur nöfn: Ícelandic dog, Islansk Farehond, Friaar Dog.
Hæð á herðakamb
Rakkar 46 sm og tíkur 42 sm.
Þyngd
Ekki skilgreind.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|