Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Japanskur Spísshundur.

Lýsing
Þetta er lipur, sterkbyggður og líflegur hundur, hugaður og snjall. Japanski Spísshundurinn er ástúðlegur félagi. Hann er mjög varkár gagnvart ókunnugum og geltir mikið, sem gerir hann að góðum varðhundi. Japanski Spíss er aðlögunarhæfur, og heldur að sjálfur að hann sé stærri hundur. Tegundin nýtur sí meiri vinsælda í Evrópu.


Uppruni
Uppruninn í Japan eins og nafnið gefur til kynna. Hvernig Japanski Spíss varð til er óljóst, en talið er að hann sé kominn af hvíta Þýska Spísshundi sem kom til Japans í kringum árið 1920, með viðkomu í Síberíu og Norðaustur Kína. Sumir telja hann skyldan Samoyed. Árið 1921 var tegundin fyrst sýnd á sýningu í Japan. Árið 1948 gaf Japanska hundaræktunarfélagið út ræktunarmið fyrir tegundina.


Umhirða
Bursta þarf Japanska Spísshundinn reglulega, en böðun aðeins þegar nauðsinlegt þykir. Tegundin er almennt hreinleg. Þegar þeir fara úr hárum skal einnig kemba yfir feldinn.



Hreyfing
Hentugur fyrir íbúðarlíf. Japanski Spíss þarf daglega, meðalmikla hreyfingu.


Leyfilgir litir
Perluhvítur.

Hæð á herðakamb
Rakkar 30 - 38 sm. Tíkur 30 - 35 sm.

Þyngd
U.þ.b. 10 kg.

Heimild: www.hvuttar.net