Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Langhundur.

Lýsing
Þessi kröftugi, fallegi og hugrakki hundur hefur mikið þol. Langhundur er ástúðlegur og glaðvær. Hann er sjálfstæður, nokkuð herskár, og reynir stundum að hafa yfirráð yfir öðrum hundum þótt stærri séu.  Snögghærða afbrigðið er hvað orkumest, á meðan sá strýhærði er sveitalegastur og hefur hvað mestu veiðihæfileikana. Síðhærði Langhundur er rólegastur af þeim þremur. Allir langhundarnir þurfa ákveðna en milda þjálfun frá unga aldri. Í dag er Langhundur haldin sem félagi, og er ef til vill mest þekktasta tegundin í heiminum. Langhundarnir eru miklir karakterar og geta verið skemmtilegir félagar.

Uppruni
Til eru þrjár feldgerðir af Langhundum: Snögghærður, strýhærður , og síðhærður. Til eru einnig  tvær stærðir af Langhundum: Dverg og Standard. Uppruni Langhunda hefur verið óráðinn um tíma. Snögghærða afbrigðið er elst og er talið hafa verið skapað með kynblöndun snögghærða Jura Bruno við Pinscher hunda. Síður- og strýhærður langhundur voru svo ræktaðir út frá þeim snögghærða. Á 17 öld var sá síðhærði skapaður, strýhærði var skapaður seint á 19 öld með því að kynblanda snögghærða Langhundi við Schnauzer, Dandie Dinmont Terrier, og kannski Skoska Terrier. Fyrsta ræktunarmiðið var skrifað 1879. Þýski Langhundaklúbburinn (Deutscher Teckel Club), var stofnaður árið 1888. Standard afbrigðin (sérstaklega sá strýhærði) var notaður sem sporhundur við veiðar á héra, kanínum, einnig til að fæla refi og greifingja úr bælum sínum. Í dag er strýhærði Langhundurinn vinsælastur.

Umhirða
Síðhærði og strýhærði langhundur þurfa reglulega burstun. Strýhærða Langhund  þarf að reyta reglulega. 

Hreyfing
Langhundar eru heppilegir fyrir borgar- og íbúðarlíf, sérstaklega sá síðhærði. Samt sem áður þurfa þessir litlu hundar þó nokkra hreyfingu og hafa gaman af henni.

Leyfilegir litir
Snögghærði Langhundur: Einlitur: Rauður, gullrauður, gull með sambland af svörtum hárum. Tvílitur: Svartur, brúnn, grár, hvítur á útlimum, gulbrúnn með flekkjum yfir augum, á hliðum trýnisins , á bringu og uppleggjum, og fótum. – Ljósbrúnn, ljósgrár, eða hvítur bakgrunnur með óreglulegum dökk brúnum, gull, gull rauðum, eða svörtum blettum. Stríðhærður: Allir litir leyfilegir. Síðhærður: sömu litir og hjá þeim snögghærða.