Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
St. Bernard, Snögghærður

Lýsing
Þessi athugulli, árvaki hundur hefur ótrúlegt þol. Hann er auðveldur í þjálfun og þjónar miklum tilgangi, s.s. eins og varðhundur, fjárhirðir, dráttarhundur og björgunar- og leitarhundurhundur og sem félagi. Sem gæludýr er hann tryggur, blíður og mjög barngóður. Sterkur, þróttmikill og lipur.

Uppruni
Forfeður Stóra Svissneska Fjallahundsins eru kraftmiklu, þrílitu hundarnir "butcher Mastiff." Seint á miðöldum, fór þessi tegund í bardaga með Svissneskum hermönnum. Árið 1908 voru tveir Snögghærðir Bernese Fjallahundar skráðir á sýningu. Dr. Albert Heim var viðstaddur sýninguna og viðurkenndi þá sem eftirlifanda af stóra butcher Mastiff, sem voru þá komnir að útrýmdri tegund. Svissneski Fjallahunda klúbburinn, var stofnaður 1912. Ræktunarmið tegundarinnar var gefið út fyrst sinn og viðurkennt af FCI, árið 1939.

Umhirða
Regluleg burstun.

Hreyfing
Svissneski Fjallahundurinn er ekki hentugur sem íbúðarhundur. ann þarfnast mikillar hreyfingar og pláss.

Leyfilegir litir
Svartur bakgrunnur með samræmdum, brúnleitum og hvítum blettum.

Hæð á herðakamb
Rakkar 65 - 72 sm. Tíkur 60 - 68 sm.

Þyngd
Meðalþyngd rakka 40 kg. Meðalþyngd tíka 35 kg.

Heimild: www.hvuttar.net