|
| |
| |
|
 |
St. Bernard.
Lýsing
Þessi friðsæli, rólegi, blíði og vinalegi hundur er mjög
félagslyndur, háður eiganda sínum, og stórhrifin af
börnum. Var um sig innan um ókunnuga, St. Bernard getur
verið árásagjarn ef aðstæður heimila. Hann þolir kalda
veðráttu mjög vel. Hárafar er mismunandi, Stutt eða
loðið. Þjálfun ætti að byrja snemma því vegna
stærðarinnar getur hann orðið erfiður. Tegundin þolir
illa hita.
Uppruni
St. Bernard er talin komin af fornum Molosser hundum sem
fóru yfir Alpafjöllin með Rómverskum hersveitum. Rætur
tegundarinnar er hægt að rekja til Sviss þar sem munkar
í mikilfenglega Saint Bernard greiðastaðnum (reist á
miðöldum) þróuðu tegundina í kringum 12 öld. St. Bernard
sannaði sig sem fjalla björgunarhundur. Frægasti St.
Bernard sögunar var Barry, fæddur árið 1800. Hann
bjargaði 40 manns yfir 10 ára tímabil. Fyrir 1830 höfðu
St. Bernard aðeins snöggt hár, síðan var þeim blandað
við Nýfundnalandshund og þá kom síðhærða afbrigðið.
Síðhærða er nú vinsælla.
Umhirða
Dagleg rösk burstun. Fylgjast þarf með augum. St.
Bernard slefar nokkuð mikið.
Hreyfing
St. Bernard er stór hundur sem þarf mikla hreyfingu og
nóg pláss, hann er því ekki heppilegur fyrir íbúðarlíf.
Of mikil hreyfing fyrir ungan hund er hættuleg. Ekki
skal byrja að hreyfa þá að viti fyrr en þeir eru búnir
að ná fullum þroska, um 2 ára aldurinn.
Leyfilegir litir
Hvítur með miðlungs stórum rauðbrúnum flekkjum.
Bröndóttur rauðbrúnn litur er leyfilegur. Svart
litbrigði á höfði er mikils metið.
Hæð á herðakamb
Rakkar a.m.k. 70 sm.
Tíkur a.m.k. 65 sm.
Þyngd
55 - 100 kg.
|
|
|
|
|
|
| |
|
|