Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Snögghærður Vorstehhundur.

Lýsing
Snögghærði Þýski Bendir er greindur, vinalegur og nærgætinn. Hann er mjög háður og tryggur húsbónda sínum en oft hlédrægur og feiminn við ókunnuga. Hann þolir borgarlíf vel ef hann fær næga hreyfingu. Hann er auðveldur í þjálfun. Þýski Bendir hefur mikið þol og hræðist ekki kulda og getur veitt í hvaða landslagi sem er. Fullur af orku, en jafnlyndur og hlýðinn, strangviljugur og getur verið þrjóskur. Þýski bendir er mikið fyrir börn og húsbóndahollur, það gerir hann að góðum félaga.

Uppruni
Snögghærði Þýski Bendirinn er uppruninn frá þýskalandi. Talið er að tegundin sé komin af nú útdauða Chien d’Oysel, sem var seinna kallaður Chien de Rêts. Hann var notaður við netfuglaveiðar og fálkaveiðar. Seinna var blóði af líklega, Enskum, Spænskum og Ítölskum bendum bætt við.

Umhirða
Regluleg burstun. Hreinsa skal eyru og einnig svæðið undir vörunum. Ef hundurinn fær legubletti skal bera krem á þá staði. Klær eru klipptar eftir þörfum.

Hreyfing
Þarf nóg pláss og mikla hreyfing. Hann getur þó aðlagað sig að borgarlífi.

Leyfilegir litir
Kastaníubrúnn án flekkja. Kastaníubrúnn með hvítum flekkjum eða smáblettum á bringu og leggjum. Dökk Kastaníubrúnn-apalrauður með Kastaníubrúnu höfði og flekkjum. Ljós Kastaníubrúnn-apalrauður með Kastaníubrúnu höfði og flekkjum, með eða án Kastaníubrúnum blettum. Hvítur með Kastaníubrúnum flekkjum á höfði, og með Kastaníubrúnum blettum eða flekkjum. Svartur með sömu litbrigðum og kastaníubrúnir eða apatrauðir hundar. Gulbrúnir flekkir leyfðir. Hvít blesa með blettóttum vörum er leyfilegt.

Hæð á herðakamb
Rakkar 62 - 66 sm. Tíkur 58 - 63 sm.

Þyngd
25 - 32 kg.


Heimild: www.hvuttar.net