13. júlí
ISFTCH The Captains Ljósavíkur Coco WC

Coco náði þeim áfanga, laugardaginn 10. júlí sl, að verða Íslenskur Veiðimeistari.
18. nóvember ´09

Kata mín féll frá í gærmorgun, 17. nóvember.
4. júlí

Kata gaut 7 hvolpum í morgun, gekk mjög vel tók ekki nema 2 tíma:) 5 svartar tíkur, 1 svartur rakki og 1 gulur rakki.
15. júní

Coco fékk tvær 1. einkunnir og valinn besti hundur í opnum flokki í veiðiprófum sem haldin voru við Fossatún helgina 13-14. júní.
Á myndinni eru frá vinstri: Dagur Jónsson dómaranemi, Sigurður Ben Björnsson fulltrúi HRFÍ, Heiðar Sveinsson með Suðurhjara Atlas bestur í byrjenda flokki 14. júní, Ingó með Coco best í opnum flokki báða dagana, Ulla Lindner dómari frá Danmörku, Sigurmon Hreinsson með Copperbirch Samurai bestur í byrjenda flokki 13. júní og ISVCH Copperbirch Montanus bestur í úrvals flokki 14. júní og Samúel Hermannsson með Skaftár Brynju Ísey best í úrvalsflokki 13. júní.
29.apríl

Coco er kominn upp í Opinn flokk og fékk 1. einkunn á Akranesprófinu sem var haldið laugardaginn 25. apríl.
3. janúar

Fór með Kötu í óobinbert veiðipróf í dag hjá Halldóri retriever dómara og fékk hún 1. einkunn. Góð þátttaka og frábært veður. Coco er að lóða og fékk því frí í dag.
12. september

Kominn með blog þar verður á næstu vikum nýjustu uppl. um gotið. www.labrador.blog.is
21. ágúst

Það er komið nokkur video af Kötu inn á hennar síðu. Tekið upp 2006 og í mars 2008.
17 ágúst 2008

Kata gaut 7 hvolpum í dag 5 gulum og 2 svörtum. Gekk mjög vel og allir hvolpar sprækir.
6.ágúst

Verðlaunahafar á veiðiprófinu sem haldið var við Hunkubakka 2. ágúst. Ingó með Captains Ljosavikur Coco best í BFL, Sigurmon (Kóngurinn) með Copperbirch Montanus frá Kolkuósræktuninni bestur í ÚVFL og Guðmundur Viborg með Kolkuós Hrund best í OFL, og dómarinn Ivan Lund frá Danmörku. Coco, Montanus og Hrund voru öll með 1. eink og heiðursverðlaun..
12. júlí

Verðlaunahafar á veiðiprófinu sem var haldið við Hringatjarnir í dag. Þorsteinn Birgisson með Kolkuós Hrímu, best í ÚVFL, Ingó með Ljosavikur Coco best í BFL, Sigurður Magnússon dómari og Ingimar Bjarnason með Kolkuós Hlunk bestur í OFL.
24. febrúar

Fékk þetta málverk af Kötu sent frá Texas fyrir helgi. Það er málað af Mary Ann sem er með ræktunina Texas pointing labs
16. nóvember

Coco er komin úr einangrun.
17. október

Coco kom til landsins í gær þriðjudaginn 16. október.
11. ágúst

Ljósavíkur Tító fékk 1. einkunn á veiðiprófi sem var haldið á Hunkubökkum 4. ágúst. Dómari dagsins var Fritz B. Kraft frá Þýskalandi. Á myndinni er Anna Dóra og Tító.
16. júlí

Ljósavíkur Tító fékk 1. einkunn og var valinn besti hundur í UFL á veiðiprófi sem var haldið í Fossatúni 14. júlí.
Anna Dóra stjórnaði Tító og gerði það með stæl og fékk hrós frá dómaranum fyrir góða höndlun, dómari í UFL var Margrét Pétursdóttir.
16. júlí

Tiger kom úr einangrun 14.júlí, og er ótrúlega brattur eftir 4 vikna einangrun! Tiger er með titilinn MPR (Master Pointing Retriever). Hann er sameign þriggja manna ( Hrafn Sveinbjarnason, Ingibergur Þorvaldsson og Ingólfur Guðmundsson) Tiger kemur frá Jazztime ræktuninni (USA) og hefur verið í þjálfun hjá Larry Calvert (Jazztime)sem er einn farsælasti field trial þjálfari Ameríku og hefur titlað marga hunda úr sinni ræktun. Pabbi Tigers er heitasti labrador field trial stud í Ameríku í dag!!! Hann hefur 5 titla á hæðsta leveli AFC-CFC-CAFC-GMPR-MHR og mamma Tigers er GMHR (Grand Master Hunting Retriever) Þau eru bæði pointing labrador (taka stand á lifandi bráð!!!!!!!!)
19. júní

Tiger kom til landsins mánud. 11. júní. Myndirnar voru teknar í dag.

Ben fékk 1. einkunn í OFL og valinn besti hundur á veiðiprófi sem var haldið á Snæfellsnesi 9. júní.
4.júní

Erum búin að festa kaup á pointing labrdor frá USA sem heitir Tiger þessi svarti, hann er tæplega 15 mánaða gamall í dag og er Master Pointing Retriever (MPR) hann kemur til landsins 11. júní. Tiger er 12 vikna á myndinni. Við eru einnig búin að kaupa súkkulaði brúnan hvolp frá USA sem heitir Coco og kemur úr sterkri veiðihundalínu og er einnig pointing labradorar á bakvið hana. Coco er 10 vikna gömul á myndinni en er 4ra mánaða gömul í dag og kemur til landsins í haust.
3. júní

Tító fékk 1. einkunn á veiðiprófi 19. apríl ´07
10.feb. ´07

Fantur minn féll frá í dag 10 feb.
23. des ´06

Fantur er fluttur til Danmörku , hann er 8 ára í dag. 23. des. ´06

Það er búið að röntgen mynda Tító og kom aldelis vel út úr því, A mjaðmir og A olnbogar.
2. apríl

Ben fór í sitt fyrsta veiðipróf á Íslandi og fékk 1. eink. í BFL og besti hundur í sínum flokki og Kata er kominn í ÚVFL og fékk 2. eink.
17. desember
Tító fór til nýju fjölskyldunnar laugardaginn 10. des. Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir.
18. nóvember


Ben og Kata á æfingu í morgunn.
16. nóvember

Við erum komin með ræktunarnafnið LJÓSAVÍKUR á myndinni er Ljósavíkur Tító.
28. október

Ben fór í augnskoðun í kvöld hjá dönskum sérfræðingi og kom vel út úr því , engin merki um arfgenga augnsjúkdóma. Nú uppfylla Ben og Kata allan heilsupakkann eins og best verður á kosið, bæði með A mjaðmir og A olnboga og laus við arfgenga augnsjúkdóma.
25. október
Það gengur vel með gull molann, mjög duglegur á spena og þyngist hratt og er vel á annað kíló.
Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir
17. október
Kata gaut 2 dökk gulum strákum í gærkvöldi og annar þeirra var því miður dauður. Kata stendur sig mjög vel í móður hlutverkinu og hvolpurinn er sprækur.

Fyrri hvolpurinn komin í heiminn, sá sem lifði.

Hvolpurinn er duglegur á spena.

Hvolpurinn er hraustlegur að sjá.

Gott að kúra hjá mömmu.
12. október

Kata komin 8 1/2 viku á leið.
5. október

Nú styttist í gotið hjá kötu, hún er komin 7 1/2 viku á leið.
18. september
Kata er hvolpafull og mun gjóta um miðjan október, gulum og svörtum hvolpum. Ben er að sjáfsögðu pabbinn. Bæði eru innflutt frá Ameríku. Bæði eru með A mjaðmir og A olnboga og laus við arfgenga augnsjúkdóma. Þau koma frá mjög sterkri veiðilínu í Ameríku bæði field trial og pointing labrador lína.Þau koma bæði frá Black Forest ræktuninni sem er þekkt fyrir framúrskarandi árangur í pointing labrador ræktun og frábært heilsufar. Faðir Bens, Grits sem er orðinn 10 ára er talinn einn besti núlifandi pointing labrador stud í Ameríku, hann hefur gefið af sér fjölda hunda sem hafa náð mjög langt í veiðiprófum, t.d. GMPR HRCH BLACK FOREST'S BEAR GRITS MH. BJ faðir kötu er sagður einn sá ákafasti pointing labbi sem sögur fara af, algjör vinnumaskína, hann er mjög hraður og ákveðinn það er leitun að hundi sem hleypur hann uppi, hann veit ekki hvað er að gefast upp og það er ekkert sem stoppar hann þegar komið er að leita af fuglum hvort sem er á landi eða við erfiðustu aðstæður að vetri til í vatni. BJ er jafnframt frábær heimilishundur, rólegur og barngóður. Móðir BJ, Blackdog’s Bonkerjohn Kate. UKC HR, HRCH; NAHRA MHR; APLA CP, IPR, MPR, GMPR; AKC MH, and Qualified All Age for Field Trials er einn mest titlaði labrdor hundur í Amríku! Pabbi Kate Trieven Twist and Shout er einn af stóru nöfnunum í field trilal og pointing labrdor bransanum.
Ef þú ert að leita af mjög góðum og vel ættuðum veiðihundi sem er jafnframt frábær heimilishundur og barngóður þá ertu á réttum stað!
Áhugasamir hafið samband: email pointinglab@internet.is eða í síma 824-4184
12. ágúst
Vorum að fá þær góðu fréttir að Ben er bæði með A mjaðmir og A olnboga, sem sagt HD frí. Hann er augnskoðaður úti í Ameríku og er laus við arfgenga augnsjúkdóma.

Ben á standi
2. ágúst
Um verslunarmanna helgina var haldið 2ja daga veiðipróf sem danski dómarinn Flemming Roed dæmdi. Kata fékk 1. einkunn í opnum flokki seinni daginn og var besti hundur í sínum flokki.

1. júlí
CPR Grits Levi of Black Forest JH "Levi" bróðir Bens náði þeim áfanga að verða Junior Hunter (JH) fyrir stuttu, en það er á vegum American Kennel Club. Hann er einnig kominn með CPR titil (Certified Pointer Retriever) á vegum APLA (American Pointing Labrador Association)

CPR Grits Levi of Black Forest JH
22. júní
Myndir af Ben á æfingu hér
15. Júní
Fór með Ben að Hafravatni í dag.






14. Júní
Ben kom úr Hrísey í kvöld og er bara brattur eftir vistina.
17.Maí

Ben kom til landsins frá Oklahoma snemma í morgunn og var kominn út í Hrísey kl 21 um kvöldið þá búinn að vera 2 sólahringa á ferðalagi.
3.Maí
Ben fór í sitt fyrsta veiðipróf laugardaginn 30. Apríl á vegum APLA (American Pointing Labrador Association) sem var haldið í Colorado. Hann stóð sig mjög vel og er kominn með CPR titil (Certified Pointer Retriever)

24. Apríl
Um miðjan Maí kemur til landsins annar Pointing Labrador og að þessu sinni er það rakki, hann kemur úr sömu ræktun og Kata, Black Forest kennel Hann heitir Grits Benjamin of Black Forest (Ben) og er árs gamall. Faðir hans er GMPR Grits of Black Forest SH sem hefur gefið af sér fjölda góðra Pointing Labradora þ.á.m.CP IPR MPR GMPR HR HRCH BLACK FOREST'S "BEAR" GRITS JH SH MH . Móðir Bens er Cajun Casey of Black Forest og foreldrar hennar eru Cajun (afi Kötu) og Gina sem er Bresk ræktuð og hefur gefið af sér fjölda góðra hunda. Gina á ættir að rekja til veiðihunda sem koma frá Drakeshead, Hambrook og Swinbook í Bretlandi.

Ben 5 mánaða gamall á standi.
24. Apríl
Gunner bróðir Kötu er orðin Junior Hunter aðeins 11 mánaða gamall. Brodie hálf bróðir Bens er Certified Pointer (CP) aðeins 9 mánaða gamall.

Gunner JH Matt og CP Brodie CP Brodie
23. Apríl
Kata fékk 1. einkunn á veiðiprófinu á Akranesi í dag.

24. Mars ´05
Bræður Kötu (úr öðru goti 10 mánaða gamlir) voru að gera það fínt í 2ja daga veiðiprófi um sl. helgi (16-.17 Mars ´05). Þetta veiðipróf var AKC Junior Hunt Test (JH) hundurinn þarf að standast þessi próf fjórum sinnum til að fá JH titil. Gunner stóðst prófið báða dagana en Brave seinni daginn sem er mjög gott af 10 mánaða gömlum hvolpum. Á næstu vikum fara þeir bræður í veiðipróf á vegum American pointing labrador Association APLA og reyna við titilinn Certified Pointer (CP)
Eigendur Brave og Gunner eru Matt og Mary, þau þjálfa hunda og selja þá ýmist grunnþjálfaða eða fullþjálfaða heimasíðan þeirra er Home of started pointinglabs.com þau kaupa alla hvolpana frá Black Forest ræktuninni (þaðan sem Kata kemur) 3 yngstu hvolparnir eru allir undan BJ pabba Kötu.
12. Nóvember ´04
Kata fór í augnskoðun í dag hjá Dönskum sérfræðingi og kom vel út úr því , engin merki um arfgenga augnsjúkdóma.
4.Október ´04
Við fengum þær góðu fréttir 30. september að Kata er HD frí AA sem þýðir að hún hefur topp olnboga og mjaðmir.

Kata á standi Janúar ´05