ISFTCH The Captains Ljósavíkur Coco WC

 

Coco er fædd í febrúar 2007 og kemur úr 11 hvolpa goti þar sem frosið hundasæði var notað, pabbinn er bæði Kanadískur og Amerískur Field Champion og tók stand á fuglum!!! Mamman er Master Hunter. Það eru nokkrir National Field Champion hundar á bakvið Coco. National Field Champion er sigurvegari í stæðsta field trial prófi í USA þar sem yfir 100 bestu retriever hundar í USA taka þátt í og stendur yfir í 7 daga. Aðeins 1 hundur á ári fær National Field Champion titil.  Ættbók Coco kemur frá The Captains rækuninni í Minneasota.

Uppl. um foreldra Coco Rascal og Darla

Coco fór í veiðipróf  á vegum AKC sem kallast Working Certified Test (WC)  6 mánaða gömul og stóðst það.Coco fékk WC titil , hún var yngst í prófinu. Coco er pointing labrador!!!

31. október

Árið 2007 Working Certified Test (WC) Árið 2008 Bronsmerki í hlýðni, og  þrjár 1. einkunnir í Byrjendaflokki. Árið 2009 þrjár 1. einkunnir í Opnum flokki. Árið 2010 þrjár 1. einkunnir í Úrvals flokki og einkunnin Very Good á sýningu og titillinn Íslenskur Veiðimeistari (ISFTCH)

 

 

13. júlí

 

 Coco fékk 1. einkunn og besti hundur í úrvalsflokki laugardaginn 10. júlí á Hringatjörnum. Það var þriðja 1. einkunnin í Úrvalsflokki og vann þar með sér inn titilinn Íslenskur Veiðimeistari.

29. júní

Um helgina 26-27. júní var haldið upp á 30 ára afmæli Retrieverdeildar við Úlfljótsvatn með veiðiprófi og sýningu. Coco fékk 1. einkunn og besti hundur  í Úrvalsflokki á veiðiprófinu og Very good á sýningunni. Keld Jörgensen dæmdi prófið og Jens Eric Sönderup dæmdi sýninguna, báðir frá Danmörku.

20. júní

Coco fékk 1. einkunn og heiðursverðlaun í úrvalsflokki og besti hundur í flokknum á veiðprófi sem haldið var við Draugatjörn 29. maí dómari var Sigurður Magnússon.

30. desember

Video af Coco febrúar 2010, fyrsta æfingin er ca. 200 metra "lína í gegnum lykt" vindur frá hægri og fullt af dummíum hægra megin við línuna. Smellið á myndina til að sjá videóið.

Árið 2007 Working Certified Test (WC) Árið 2008 Bronsmerki í hlýðni, og  þrjár 1. einkunnir í Byrjendaflokki. Árið 2009 þrjár 1. einkunnir í Opnum flokki.

 

25. nóvember

15. júní 09

Coco fékk 1. einkunn og var valin besti hundur í opnum flokki í veiðiprófum sem haldin voru við Fossatún helgina 13-14. júní.

23. nóvember 08

Árið 2007 Working Certified Test (WC) Árið 2008 Bronsmerki í hlýðni og  þrjár 1. einkunnir í Byrjendaflokki.

Coco er búin að fara í nokkra veiðitúra og er veiðihundur af líf og sál.

 

6. ágúst  2008

Hunkubakkar 2008 2ja daga veiðipróf

Coco fékk 1. einkunn og heiðursverðlaun og besti hundur í byrjenda flokki í veiðiprófi sem var haldið á Hunkubökkum 2. ágúst og hún fékk einnig 1. einkunn 3. ágúst.

12. júlí

Coco fékk 1. einkunn og valinn besti hundur í BFL í veiðiprófi sem var haldið við Hringatjarnir í dag. Dómari var Sigurður Magnússon.

9. júní

Coco stóðst Bronsmerki próf á vegum HRFÍ 15. apríl og sama dag lauk hún Hlýðnipróf 1 hjá Alberti Steingríms sem rekur hundaskólann Hundalíf. Coco stóð sig vel og var efst á námskeiðinu með 168 stig.

8. Mars

Coco á standi á rjúpu.

8. janúar

Stöðugleiki   Stöðugleiki   Stöðugleiki   Stöðugleiki

9. desember

Coco á æfingu, smellið á myndina til að sjá fleiri myndir sem Þórður Kristjánsson tók.

6. desember

 

28. nóvember

Coco, Ben og Kata

 

 

16. nóvember

Coco komin heim og virðist hafa komið heil úr þessari prísund.

4. nóvember

Coco í einangrun, hún kemur þaðan 15. nóv.

16. september

Fórum til Ameríku í september að heimsækja Coco og sjá hunda í action.

Coco 7 mánaða:

 

.

19. júlí

Coco 5 mánaða

25.júní

Coco er 14 vikna á myndunum

 

 

 

 

21.júní

Fórum til Ameríku í apríl að heimsækja Coco og sjá hunda í action. Coco er 10 vikna á myndunum.

Æfingatjörn í bakgarðinum.

Rob og Darla mamma Coco

Darla

Darla

Bróðir Coco sem ræktandinn heldur.