Pointing labrador og Ítalskur sýningar hundur

  Veiðihundur          Sýningarhundur 

Labrador hefur verið ræktaður lengi til veiða og svo ekki síst sem heimilishundur en hann er einn vinsælasti heimilishundur í heimi. Við ræktun hafa menn lagt mismunandi áherslu á byggingu. Veiðilínur hafa ræktast út sem eru þá léttari og hlaupalegri, gjarnan 27-35 kg. Síðan hefur ræktast í hina áttina sýningarlína sem er gjarnan 35-45 kg. Algengt er að þessum línum sé síðan blandað saman í ræktun og verður þá til lína sem gjarnan er kölluð "Dual lína". Almennt er Labrador þægilegur á heimili og vinnufús hundur sem þarfnast góðrar hreyfingar og frekar auðveldur í meðhöndlun.
 

Í Bandaríkjunum hafa pointing labradorar verið ræktaðir í áratugi  með mjög góðum árangri. Í upphafi ræktunarinnar var algengt að aðeins einn og einn hvolpur úr hverju goti yrði Pointing Labrador en nú síðustu ár eru ræktendur að ná 80-100% Pointing í hvolpana. Þessir hundar eru að ná mjög góðum árangri í  öllum tegunda veiðiprófa í USA og Canada. Það er ekki óalgengt að Pointing lab raði sér í efstu sætin hvort sem það er Field Trial eða Hunting Test.

Það eru til dæmi um að Pointing lab hafi unnið opin Pointing próf  þar sem öllum pointing hundum
af öllum tegundum eru heimild þáttaka.

 

 

 

Eftir farandi upplýsingar koma af hemasíðunni hvuttar.net

Þessi konungur Retriever hundanna er ákaflega virkur, kvikur, öruggur og traustur. Stundum kallaður "Bendir sækjanna," Hann hefur ótrúlega gott lyktarskyn og er frábært sundhundur. Hann getur sótt alla tegundir bráða á landi sem og vatni. Með gríðarmikið sjónmynni, getur hann munað lendingarstaði nokkurra fallina fugla. Traustur að rekja slóð, hann er góður sporhundur. Mjög jafnlyndur og aldrei árásargjarn, hann hefur ánægilegan persónuleika sem gerir hann að yndislegum félaga. Hæfileikar hans hafa ekki einungis verið nýttir í veiði heldur einnig í aðra vinnu s.s. sem blindrahundur, fíkniefnaleitarhundur, leitarhundur, hjálparhundur fyrir fatlaða og sem afbragðs heimilishundur. Hann er einstaklega barngóður, elskulegur og blíður hundur. Labrador er ein vinsælasta hundategundin í Evrópu í dag og víðar.

  ÖRLÍTIÐ UM UPPRUNAN
Innfæddur í Kanada, Labrador Retriever er talinn vera komin af Saint Jones hundi, sem byggði eyjuna Nýfundnaland á átjándu öld. Tegundin var endanlega sköpuð snemma á 20. öld á Englandi, þar sem hann var innfluttur eftir að hafa verið blandaður við Enska Pointer, sérstaklega. Þessi vinsælasti Retriever á óvenju jafnlynda persónuleika sínum að þakka, sem skýrir að hann sé fyrst og fremst hafður sem félagi.