Þar sem margir kunna ekki að uppfæra eða skipta um DC forrit þá er kjörið að koma með smá leiðbeiningar um það.
Ekki hafa kveikt á neinu DC forriti á meðan þú setur upp nýtt (annars getur komið fyrir að stillingar vistist ekki)
1. Installaðu nýja DC forritinu og kveiktu svo á því (þá eru allar skrár og möppur komnar í möppu forritsins).
2. Stilltu allt en ekki setja neitt í deilingu (Share) í bili, ekki setja neitt í uppáhalds tengipunta né vini.
3. Slökktu svo á DC forritinu til að stillingarnar vistist.
4. Opnaðu möppuna sem gamla DC forritið er í (venjulega c:/program files/DC forritið)
5. Opnaðu Stillingar (Settings) möppuna sem er þar og afritaðu (copy) skrárnar: Favorites.xml, HashData.dat, HashIndex.xml, Queue.xml og Queue.bak. Þú getur líka tekið ADLSearch.xml og Notepad.txt ef þú hefur notað það.
Favorites.xml
HashData.dat og HashIndex.xml
Queue.xml og Queue.bak
ADLSearch.xml
Notepad.txt

6. Opnaðu möppuna sem nýja DC forritið er í og farðu í stillingar (settings) möppuna og paste-aðu skrárnar þangað. Segðu yes þegar það er spurt hvort þú viljir overwrite-a skrárnar sem voru í möppunni.
7. Kveiktu nú á nýja DC forritinu og farðu í stillingar (settings) og settu núna inn það sem þú deildir í gamla DC forritinu í deilingu (Þá þarf forritið ekki að hash-a uppánýtt).
Núna ætti nýja DC forritið að vera tilbúið til notkunar. Allt það sem var í biðröð (queue), allir uppáhalds tengipungtar og vinir komnir inn og þú þarft ekki að hash-a uppánýtt.
Ef þetta hefur ekki virkað þá ertu samt með gamla DC í lagi því þú breittir engu þar (En ef þú gerðir þetta rétt þá á allt að vera í guddý :-)
Í flestum tilfellum þá virkar þetta en það gætu komið uppfærslur á DC forritunum með breitingum á staðli, þá fara þessar skrár ekki saman (Þær verða að vera staðlaðar eins) og þá verður þú að byggja þann lista handvirkt eða byjja hann uppá nýtt.
Page url: http://internet.is/radox/default.html?3__uppfaersla.html