Navigation:  [ DC ] Villur Og Svör >

Afhverju virkar leitin ekki

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

Afhverju fæ ég engar niðurstöður í leitinni?

Svar:

Ég geri ráð fyrir því að þú sért þá tengdur tengipunti og getir spjallað við aðranotendur og ert stilltur á Virkur (Active).

Þú ert þá ekki full virkur, örsökina er oftast að finna í eldvegg, router, eða connection sharing. Það eru nokkrir hlutir sem þú getur reynt til að laga þetta:

 

Lausn:

1.Athugaðu hvort rétt WAN IP (IP tala þín á netinu) tala sé rétt í stillingunum í DC forritinu. Þú getur fengið WAN IP töluna þína á myip.is .
2.Athugaðu hvort Portið sé rétt í stillingum á DC forritinu, sama port og þú opnaðir á routernum ef þú ert með. Venjulega er notað port 2412, 1412 eða 412.
3.Athugaðu hvort þú hefur gert villu við að opna port á routernum og að þú hafir opnað bæði TCP og UDP port 2412. Þegar þú opnar port þá þarftu venjulega að beina því porti á tölvuna sem er með DC forritið, innri IP tölu tölvunnar. Frekari leiðbeiningar færðu í Active hjálpinni.
4.Eldveggur (firewall)sem þú ert að nota í tölvunni gæti verið að trufla. Prófaðu að slökkva á honum og reyna aftur, ef það virkar kveiktu þá aftur á honum aftur og opnaðu port á honum handvirkt. Opnar bæði TCP og UDP port 2412. (Það er oft ekki nóg að hleipa DC í gegnum eldvegginn með því að segja "Always allow this program to use internet" þegar það poppar upp gluggi frá eldveggnum þegar þú ræsir DC forritið fyrst.)
5.Ef þú ert á neti í skóla eða vinnu þá gæti verið að netstjórinn hafi blockað á DC.
6.Ef ekkert virkar eftir að þú ert búinn að athuga þetta allt hafðu þá samband við einhvern sem kann þetta vel og getur hjálpað þér. Annars verður þú að stilla þig á Óvirkur (Passive).

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?afhverju_virkar_leitin_ekki.html