Navigation:  [ DC ] Active leiðbeiningar > Skref - 3 - DC forritið >

ApexDC

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

 

Opnaðu ApexDC forritið ef það er ekki opið og farðu í File (efst til vinstri) og veldu þar Settings.

( 1 ) Klikkaðu á Connection setting (Tengistillingar)(Þá færðu upp skjáinn eins og á myndinni fyrir neðan).

( 2 ) Í Network Interface for all connection (IP tala netkorts í tölvunni) notar þú felligluggan og velur þá tölu sem þú fékkst upp í undirbúningnum.

(Ef þú ert bara með eitt netkort í tölvunni þá má skrifa bara 0.0.0.0 í reitin, þetta er bara til að forritið greini milli netkorta)

( 3 ) Settu punktinn í Firewall with manual port forwarding (Virkur - með forstilltri leið gegnum router og eldvegg) eins og á myndinni.

( 4 ) Hérna setur þú inn WAN IP töluna þína, talan kemur sjálfkrafa þegar þú klikkar á Get IP (Fá IP tölu) (Stundum klikkar þetta svo tékkaðu töluna sem þú fékkst og berðu hana saman við töluna sem þú færð á myip.is))

( 5 ) Hakaðu hérna í Update IP on startup (Uppfæra IP við ræsingu)

( 6 ) TCP portið - Settu 2412 eða það port sem þú ætlar að opna, verður að vera það sama á routernum og eldveggnum.

( 7 ) UDP portið - Settu 2412 eða það port sem þú ætlar að opna, verður að vera það sama á routernum og eldveggnum.

( 8 ) Hafðu TLS gluggan tóman eða bara með núlli (þetta er fyrir port sem á að dulkóða en þetta er ekki orðið virkt núna, þetta er framtíðar fídus)

 

 

Mynd af Connection settings glugganum í ApexDC 0.2.2

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?apexdc2.html