Navigation:  »No topics above this level«

[  DC  ]  Byrjenda Hjálpin

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

0. Hvað er DC (Direct Connect)

1. Ná sér í DC forrit.

2. Installa DC forriti.

3. Helstu stillingar til að geta byrjað.

4. Tengjast tengipunktum.

5. Spjall.

6. Hvernig á að finna hluti.

7. Hvernig á að niðurhala hlutum.

 


0. Hvað er DC (Direct Connect)

 

DC er spjall og skrárskiptaforrit þar sem fólk getur talað saman á aðalspjalli (Þar sem allir tala saman) eða einkaspjalli (Þar sem þú talar bara við áhveðna persónu) og þar sem þú getur niðurhalið frá öðrum sem þeir eru að deila.

Allir koma inn á tengipunktinn með sína deilingu og fer eftir tengipunkt hvað mikið þú þarft að deila til að komast inn á hann.

 

 


1. Ná sér í DC forrit.

 

Til eru margar gerðir af DC forritum og þau helstu eru DC++, StrongDC++ og ApexDC++. DC++ forritið er í raun bara grunnur fyrir önnur DC forrit og hefur ekki uppá mikið að bjóða. StrongDC++ byggir á DC++ forritinu ásamt öðrum forritum en ApexDC++ byggir á StrongDC og er því að mínu mati fullkomnasta DC forrit sem þú getur fengið í dag og ég mæli eindregið með því að þú náir í það.

Þú getur náð í ApexDC++ á heimasíðu þeirra hérna: http://www.apexdc.net/download/ mæli með að þú náir í setup skránna ef þú ert að byrja með DC í fyrsta skiptið.

 


2. Installa DC forriti.

 

Ef þú hefur náð í setup skránna þá er innsetningin á DC sú sama og á flest öllum öðrum forritum, bara klikkar á next og velur það sem þér hentar við uppsetningu.

 


3. Helstu stillingar til að geta byrjað.

 

Þegar DC forritið er ræst í fysta skiptið þá opnast stillingar glugginn sjálfkrafa því ekki er hægt að nota DC forritið nema að gefa upp grunn stillingar.

 

1. Þú þarft að gefa upp notendanafn í General-Nick í stillingum. Þú ræður svo hvort þú fillir út annað í Genaral glugganum.

2. Í Connection Settings setur þú hak við Firewall (Passive, Worst Case) til að byrja með.

3. Í Downloads glugganum efst gefur þú upp hvert niðurhalið þitt á að fara þegar það hefur klárast að niðurhalast og í annari línu hvert það á að fara þegar það er að niðurhalast.

4. Í Downloads glugganum neðst klikkar þú á Configure Public hublist takkann, þá færðu upp annan glugga og í efstu línuna þar setur þú http://kjarni.cc/hublist og klikkar á Add og svo OK.

5. Í Sharing glugganum velur þú þær möppur sem þú ætlar að deila með öðrum, í flestum tilfellum þá þarftu að deila meira en 5gb til að komast inn á tengipunkta. (Klikkaðu á Run in the background þegar Hash glugginn kemur upp þegar þú setur einhvað í deilingu, Það getur tekið soldin tíma fyrir skrárnar sem þú deilir að komast í deilingu vegna kennileitisgerðar forritsins, en þú bíður bara rólegur : )

6. Aðrar stillingar ræður þú sjálfur en mæli með að vera ekki að fikta í þeim nema að vita hvað þú ert að gera.

7. Klikkaðu svo á OK neðst til að vista þessar stillingar.

 


4. Tengjast tengipunktum.

 

Ef þú hefur farið eftir leiðbeiningunum hér að ofan þá ætti íslenski tengipunktalisinn að vera kominn í forritið þitt, þannig að....

1. Opnaðu Public hub list (Tengipunktalistann) (hann er lengst til vinstri í tækjastikunni)

2. Ef íslenski listinn kemur ekki sjálfkrafa upp breittu þá tengipunktalista felliglugganum í http://kjarni.cc/hublist og refreshaðu

3. Núna ættiru að sjá lista yfir þá tengipunkta sem eru starfhæfir á íslandi, þú getur 2 klikkað á tengipunkt til að tengjast honum.

4. Í tengippunktalistanum hægri klikkaðu á tengipunkt og veldu "Add to favorites" (Setja í uppáhalds tengipunkta)

5. Opnaðu núna Favorites hubs (Uppáhalds tengipunkta) gluggan sem þú finnur í tækjastikunni.

6. Hakaðu framan við þá tengipunkta sem þú villt að opnist um leið og þú kveikir á forritinu.

 

 


5. Spjall.

 

Aðalspjallið (Main) er alltaf opið meðan þú ert tengdur tengipunkt og þar geta allir talað saman sem eru tengdir á tengipunktinum.

Einkaspjall (PM) er hægt að nota með að hægri klikka á notenda í notendalistanum og velja "Send privite messege" (Senda einkaskilaboð) og þá ert þú og viðkomandi bara að tala saman og enginn annar sér það.

 


6. Hvernig á að finna hluti.

 

Tvær leiðir eru til til að finna hluti til að niðurhala...

1. Nota "Search" (Leitina) sem er í tækjastikunni (Oftast með mynd af stækkunargleri) og slá þar inn leitarorði og klikka á Enter eða Search

2. Hægri klikka á notanda og velja "Get filelist" (Fá skráarlista viðkomandi) þá geturu vafrað um í hanns deilingu og fundið þér einhvað.

 


7. Hvernig á að niðurhala hlutum.

 

Þú getur niðurhalað í gegnum leitina eða að fá skráarlista og tví klikkað á skránna eða hægri klikka á viðkomandi skrá og valið "Download" (Niðurhala), ef það er hinsvegar mappa og þú ætlar að niðurhala öllu innihaldi hennar þá hægri klikkar þú á möppuna og velur "Download whole directory"

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?dc_byrjenda_hjalpin.html