PORTFORWARD
fyrir
Linksys BEFDSR41W
Tengill.is
(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)
Ef þú ert með Windows XP, 2000 eða NT þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra ipconfig. (start --> run --> skrifar cmd og ýtir á enter (skrifaðu þar ipconfig og ýttu á enter.)) Ef þú ert með Windows 95, 98 eða Me þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra winipcfg. (start --> run --> skrifar command og ýtir á enter (skrifaðu þar winipcfg og ýttu á enter.)) Þar sem flestir eru með WinXP þá ætla ég að láta nægja að tala um ipconfig í þessum leiðbeiningum. Ef þú ert með Win9x þá notast þú að sjálfsögðu við winipcfg þar sem ég tala um ipconfig. Skrifaðu hjá þér tölurnar í IP Address og Default Gateway.
Opnaðu Internet Explorer (eða þann vafra, "browser", sem þú notar), sláðu inn töluna úr Default Gateway í address og ýtu á enter. (Yfirleitt er þessi tala 192.168.1.1 en hún getur verið næstum hvað sem er.) Þá kemur upp gluggi sem biður um Username og Password. Skrifaðu admin í bæði og smelltu á Ok (Ef þetta virkar ekki þá get ég ekki hjálpað þér, sá/sú sem setti routerinn upp
fyrir þig ætti að hafa þessar upplýsingar). Þá áttu að vera komin/n inn í uppsetninguna fyrir routerinn þinn. Smelltu á "Advanced", uppi í hægra horninu. Smelltu síðan á "Forwarding". Settu t.d. hub í "Customized Application". Settu 2412 í báða reitina undir
"Ext. Port". Hakaðu við bæði TCP og UDP. Settu "IP Address" töluna úr "ipconfig" í "IP Address". Hakaðu við "Enable". Og smelltu á "Apply" og síðan "Continue". Sumir hafa lent í því að geta ekki opnað port fyrir að hafa farið alveg eftir þessum leiðbeiningum. Fyrir einhverja sem hafa lent í því hefur virkað að slökkva á innbyggða eldveggnum í routernum, en því miður ekki alla. Ég mæli eindregið með því að fólk sem slekkur á innbyggða eldveggnum fái sér einhvern hugbúnaðar (software) eldvegg í staðinn. Einnig langar mig að biðja fólk sem finnur aðrar lausnir á þessu vandamáli með þennan router að hafa samband við mig svo að ég geti uppfært þessar leiðbeiningar. En hérna koma leiðbeiningar um hvernig á að slökkva á eldveggnum í routernum. Ekki gera þetta samt fyrr en eftir að þú ert búin/n að gera allt annað í leiðbeiningunum og það virkar ekki. Farðu inn í router stillingarnar alveg eins og áður. Smelltu á "Advanced" Smelltu á "Firewall" Taktu hakið úr "Firewall Enabled" Smelltu síðan á "Apply" og síðan "Continue" Þá ertu búin/n að slökkva á innbyggða eldveggnum og portið ætti að vera opið
Leiðbeiningar frá portforward á ensku eru að finna hér
http://www.portforward.com/english/routers/port_forwarding/Linksys/BEFDSR41W/DC++.htm
Page url: http://internet.is/radox/default.html?linksysbefdsr41w.html