PORTFORWARD
fyrir
Netopia Cayman 3341
Tengill.is
(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)
Ef þú ert með Windows XP, 2000 eða NT þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra ipconfig. (start --> run --> skrifar cmd og ýtir á enter (skrifaðu þar ipconfig og ýttu á enter.)) Ef þú ert með Windows 95, 98 eða Me þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra winipcfg. (start --> run --> skrifar command og ýtir á enter (skrifaðu þar winipcfg og ýttu á enter.)) Þar sem flestir eru með WinXP þá ætla ég að láta nægja að tala um ipconfig í þessum leiðbeiningum. Ef þú ert með Win9x þá notast þú að sjálfsögðu við winipcfg þar sem ég tala um ipconfig. Skrifaðu hjá þér tölurnar í IP Address og Default Gateway. Opnaðu Internet Explorer (eða þann vafra, "browser", sem þú notar), sláðu inn töluna úr Default Gateway í address og ýttu á enter. (Yfirleitt er þessi tala 192.168.1.254 en hún getur verið næstum hvað sem er.) Þá kemur upp gluggi sem biður um Username og Password. Skrifaðu admin í username og 1234 í password og smelltu á ok (Ef þetta virkar ekki þá get ég ekki hjálpað þér, sá/sú sem setti routerinn upp fyrir þig ætti að hafa þessar upplýsingar). Þá áttu að vera komin/n inn í uppsetninguna fyrir routerinn þinn. Smelltu á "Expert Mode", vinstra megin á síðunni, og smelltu síðan á ok. Næst smellirðu á "Configure" og síðan "Advanced". Þar smellirðu á "Pinholes", fyrir miðja síðu, undir NAT. Þar smellirðu á "Add". "Pinhole Name" er bara nafnið á viðkomandi pinhole, t.d. hub-TCP. Í "Protocol Select" velurðu TCP Í "External Port Start" seturðu 2412 Í "External Port End" seturðu 2412 Í "Internal IP Address" seturðu "IP Address" töluna úr "ipconfig" Í "Internal Port" seturðu 2412 Þegar þú ert búin/n að setja þetta allt inn þá smellirðu á "Submit". Síðan smellir þú á "Add" aftur. "Pinhole Name" er t.d. hub-UDP Í "Protocol Select" velurðu UDP Í "External Port Start" seturðu 2412 Í "External Port End" seturðu 2412Í "Internal IP Address" seturðu "IP Address" töluna úr "ipconfig" Í "Internal Port" seturðu 2412 Þegar þú ert búin/n að setja þetta allt inn þá smellirðu á "Submit" aftur. Þegar þú ert búin/n að þessu þá ætti að vera kominn lítill gulur
þríhyrningur uppi í hægra horninu, smelltu á honum og veldu þar "Save and Restart".
Page url: http://internet.is/radox/default.html?netopia_cayman_3341.html