Navigation:  [ DC ] Active leiðbeiningar >

Skref - 0 - Undirbúningur

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

 

Til að byrja með skulum við finna ip tölurnar þínar bæði WAN (Wide area network) og LAN (Local area network)

 

WAN IP - er IP talan sem þú notar á internetinu. Til að sjá WAN IP töluna þína er best að fara á http://www.myip.is og hún sýnir þér hana.

Skrifaðu þessa tölu hjá þér eða hafðu vafrarann opinn á þeirri síðu. (A.T.H. að oftast er þessi tala föst og breitist aldrei en það eri líka til internetveitur sem eru með lausar ip tölur sem geta breist og þar á ég hellst við síman internet, kannski minni veitur líka. Þær eru fastar hjá Vodafone og Hive kannski fleyrrum. Ef WAN IP talan breitist þá þarf að breita stillingarnar aftur samkvæmt þeirri tölu)

 

LAN IP - er talan sem þú notar á innra neti heimilisins eða stofnunar. (A.T.H. að þessi tala getur breist ef slökkt er á router eða tölvan færð annað og þá þarftu að breita stillingunum samkvæmt því. En í flestum routerum er hægt að festa LAN IP tölu tölvunnar á routerinn þannig að hún breitist aldrei. (Leiðbeiningar seinna um það.))

Til að sjá LAN IP töluna þína gerir þú eftirfarandi.

Klikkaðu á Start og svo Run í windows, þá færðu upp lítin glugga til að skrifa í. Í hann skrifar þú CMD og klikkar á ok.

Þá færðu upp dos (command promt) glugga og þú skrifar í hann " ipconfig /all " án gæsalappana og þá færðu upp glugga eins og á myndinni hér fyrir neðan.

 

Hafðu þennan glugga opin á meðan þú gerir þig virka/n.

 

1. Host Name - Þetta er nafnið á tölvunni þinni (Þarft að vita það ef þú ert með SpeedTouch 585).

 

2. IP address - Þetta er LAN IP talan þín. (Skrifaðu hana niður)

 

3. Default gateway - Þetta er ip talan á routernum sem þú þarft til að komast inná stillinga síðuna hanns.

Ef talan er 192.168.1.254 þá opnar þú vafra (Firefox eða IE) með þessari tölu, t.d. http://192.168.1.254

 

4. Physical Address - Er kennitala netkortsins sem þú ert með í tölvunni þinni. Þessa tölu þarft þú að hafa ef þú ætlar að festa LAN IP tölu tölvunnar á routerinn til að hún breitist ekki (Leiðbeiningar um það koma kannski seinna).

 

Núna getur þú haldið áfram á næsta skref.

 

 

 

 

 

 

 

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?skref___0___undirbuningur.html