PORTFORWARD
fyrir
SpeedTouch 510/545/570/580/590
-=RadoX=-
(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)
Ef þú ert með Windows XP, 2000 eða NT þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra ipconfig. (start --> run --> skrifar cmd og ýtir á enter (skrifaðu þar ipconfig og ýttu á enter.)) Ef þú ert með Windows 95, 98 eða Me þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra winipcfg. (start --> run --> skrifar command og ýtir á enter (skrifaðu þar winipcfg og ýttu á enter.)) Þar sem flestir eru með WinXP þá ætla ég að láta nægja að tala um ipconfig í þessum leiðbeiningum. Ef þú ert með Win9x þá notast þú að
sjálfsögðu við winipcfg þar sem ég tala um ipconfig. Skrifaðu hjá þér tölurnar í IP Address og Default Gateway.
Opnaðu Internet Explorer (eða þann vafra, "browser", sem þú notar), sláðu inn töluna úr Default Gateway í address og ýttu á enter. (Yfirleitt er þessi tala 192.168.1.254 en hún getur verið næstum hvað sem er.) Ef að það hefur verið skilgreindur user og password þá kemur upp gluggi núna sem biður um það. (Ef þetta kemur upp þá geturðu prufað: USER = admin og PASS = admin (Ef þetta virkar ekki þá get ég ekki hjálpað þér, sá/sú sem setti routerinn upp fyrir þig ætti að hafa þessar upplýsingar)) Þá áttu að vera komin/n inn í uppsetninguna fyrir routerinn þinn. Ef þú ert með 510 router þá smellirðu á "Advanced" vinstra megin á skjánum. Ef þú ert með 570 router þá smellirðu á "Other Places" vinstra megin á skjánum. Þetta er eini munurinn á uppsetningunni á þessum tveimur routerum, það sem kemur á eftir er eins fyrir þá báða. Smelltu á "NAT" (NAPT ef þú ert
með SpeedTouch 590). Smelltu á "NEW". "Protocol" á að vera tcp. Í "Inside IP" á að setja töluna úr "IP Address" úr "ipconfig". Í "Outside IP" á að setja 0.0.0.0 Í "Inside Port" á að vera 2412 Í "Outside Port" á að vera 2412 Síðan smellirðu á "Apply". Smelltu síðan á "NEW" aftur. "Protocol" á að vera udp. Í "Inside IP" á að setja töluna úr "IP Address" úr "ipconfig". Í "Outside IP" á að setja 0.0.0.0 Í "Inside Port" á að vera 2412 Í "Outside Port" á að vera 2412 Smelltu síðan á "Apply". Smelltu á "Save All", Efst vinstra megin á
síðunni.





Page url: http://internet.is/radox/default.html?speedtouch_510_570_580_590.html