
5000 tré
gróðursett við Hald fyrir framlag
Hraunverksmiðjunnar. Í upphafi
ársins gerðu HRAUNVERKSMIÐJAN.IS og
HEKLUSKOGAR.IS með sér samning um að
Hekluskógar fengju eitt tré fyrir hvern seldan
hraungrip frá Hraunverksmiðjunni. Skömmu
síðar hófst eldgos sem hafði
áhrif víða um heim. Ýmis
fyrirtæki hafa nýtt sér gripi frá
Hraunverksmiðjunni til landkynningar. Samvinna
þessara aðila og með aðstoð
sumarstarfsmanna LANDSVIRKJUNNAR hafa nú verið
gróðursettat nokkur þúsund
birkitrjé við Hald í nágrenni
Heklu. Af þessu
tilefni varð til nýr minjagripur hjá
Hraunverksmiðjunni sem vegna augljósra
staðreynda heitir: ONE LAVA
- ONE TREE - ONE WORLD Í
handmálaðri öskjunni er hraunmoli úr
Eyjafjallajökli og textablað þar sem
útskýrt er samband eldvirkninnar og upphafs
lífs á jörðinni á annari
hlið, en á hinni eru útskýrð
markmið Hekluskóga verkefnisins með
skírskotun til Ara Fróða og
Íslendingabókar. Hverri öskju fylgir
síðan eitt birkitré gróðursett
og áborið. Eins og
aðrar vörur HRAUNVERKSMIÐJUNNAR þá
er þessi gripur kjörin til sérmerkinga
fyrir fyrirtæki, ráðstefnur eða fundi
og alla þá aðila sem áhuga hafa
á að kynna Ísland á erlendri
grundu. Athyglisvert er
að skoða hraunið úr þessu
síðasta eldgosi, í því
leynast glerlíkar agnir í ýmsum litum
allt frá glæru og út í svart
jafnvel gyllt. Það er gerólíkt
Hekluhraunum sem hingað til hafa verið aðal
hráefni HRAUNVERKSMIÐJUNNAR.
Hraunverksmiðjan er vinnustofa hraunlistamannsins Snorra
Guðmundssonar og hefur verið starfrækt
síðan Hekla gaus1991. Allar vörur
Hraunverksmiðjunnar eru hugsaðar sem einskonar
náttúruverndar áminningar og eiga
að auka virðingu okkar fyrir
náttúrunni.
Tel:
690 8233 bakki@internet.is
Videos: Hekluferð GróðursetningCONTACT: The Lava Factory - Tel: +354 690 8233 - bakki@internet.is