Síðsumardagur við Hrafnabjargafossa

 

 

Um samtökin

 

Hrafnabjargafossar freyða
fjallamjólk um gljúfrin rennur.
Á mjúkum línum hárra heiða
himinssólareldur brennur.
Upp með fljóti á aurum gráum
eyrarós ber sumarskrúða.
Á stuðlaberg í hamri háum
horfi ég gegnum fossins úða.

Höfundur: Hólmfríður Bjartmarsdóttir

 

Úfin hraun með hella í leynum
hafa andlit, grettar vættir.
Á silkimjúkum sorfnum steinum
sýnast einnig vera gættir.
Upp með fljóti á eyrum sléttum
ærnar hamast við að bíta.
Undir barði og bláum klettum
blómstrar mýrarsólin hvíta.

 

Vefurinn www.skjalfandafljot.is var stofnaður til verndunar Skjálfandafjóts gegn virkjun....bla bla bla...

Lesa meira undir Sagan.

Nýjustu innlegg

[5. september 2008]
Fallegasta vatnsfalliđ
Grein eftir Hólmfríði Bjartmarsdóttur

[18. september 2008]
Frétt: Síðan opnuð