Hraunaveita.
Frá framkvæmdum við gerð loku og inntaksmannvirkja við Upsa og Hraunaveitur.


Á árunum 2006 - 2008 vann ég sem verkstjóri og yfirverkstjóri við gerð loku og inntaksmannvirkja við Upsa og Hraunaveitur en á þessum tíma var bæði unnið að gerð inntaks við aðrennslisgöng Jökulsárveitu, botnrás, stíflugerð, jarðgangnavinna ásamt töluverðri annari vinnu á þessu svæði

Á þeim tíma sem ég var við vinnu á þessu svæði var unnið að gerð inntaksmannvirkis Jökulsárgangna, 4,5 km jarðgangna frá inntaki Upsastíflu í átt að TBM bor Impregilo, botnrás Upsastíflu, úrtaks og frárennslismannvirki undirbúningur við inntaksmannvirki, jarðgöng frá Kelduárlóni að Upsalóni ofl.

Á þessum tíma var ég yfirleitt alltaf með myndavélina á mér ekki bara til að taka myndir fyrir sjálfan mig heldur þurfti oft að geta gripið í vélina vinnunnar vegna.
Vinnusvæðið var nokkuð víðfemt þannig að eftir að hafa unnið á þessu svæði í tæp tvö ár og þurft að sinna verkefnum víða um svæðið og margoft gripið í myndavélina þá átti ég orðið nokkrar myndir af vinnusvæðinu og hef sett nokkrar hér inn til að fleiri geti skoðað þær.
Þú getur smellt hér eða á einhverja myndina hér fyrir neðan til að skoða myndasafnið.....



Tenglar þessu viðkomandi:
   
    Kárahnjúkar:
    Verkfræðistofa Austurlands:
    Montavar:
     
    Power plants around the world: