Frá Vatnsfellsvirkjun.

Haustið 1999 var skellt sér upp á fjöll og farið að vinna við byggingu Vatnsfellsvirkjunar og ílengdst þar í rúmlega tvö ár, þetta var kannski svona aðeins öðruvísi smíðavinna en ég var vanur að fást við og ekki hægt að segja annað en að það hafi verið dálítið spennandi að fá að tækifæri til að prufa þetta.

Verktaki við þessa framkvæmd var ÍAV Ísafl dótturfyrirtæki Íslenskra Aðalverktaka.

Og að sjálfsögðu var myndavélinni brugðið á loft öðru hvoru og smellt af því sem var um að vera Smelltu hér eða á myndirnar fyrir neðan til að skoða myndasafnið .