PORTFORWARD
fyrir
Planet ADE-4000, ADW-4100, Aceex AWR51/2 og CNet CNAD804NF(Conexant)
Tengill.is
(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)
Ef þú ert með Windows XP, 2000 eða NT þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra ipconfig. (start --> run --> skrifar cmd og ýtir á enter (skrifaðu þar ipconfig og ýttu á enter.)) Ef þú ert með Windows 95, 98 eða Me þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra winipcfg. (start --> run --> skrifar command og ýtir á enter (skrifaðu þar winipcfg og ýttu á enter.)) Þar sem flestir eru með WinXP þá ætla ég að láta nægja að tala um ipconfig í þessum leiðbeiningum. Ef þú ert með Win9x þá notast þú að sjálfsögðu við winipcfg þar sem ég tala um ipconfig.
Opnaðu Internet Explorer (eða þann vafra, "browser", sem þú notar), sláðu inn töluna úr Default Gateway í address og ýttu á enter. (Yfirleitt er þessi tala 10.0.0.2 en hún getur verið næstum hvað sem er.) Þá kemur upp gluggi sem biður um Username og Password. Skrifaðu admin í username og epicrouter í password og smelltu á ok ef þú ert með Planet eða Aceex router en ef þú ert með CNet routerinn þá er passwordið password (Ef þetta virkar ekki þá get ég ekki hjálpað þér, sá/sú sem setti routerinn upp fyrir þig ætti að hafa þessar upplýsingar). Þá áttu að vera komin/n inn í uppsetninguna fyrir routerinn þinn. Smelltu á "Virtual Server" vinstra megin á síðunni, undir "Configuration". Settu 2412 í reitina undir bæði "Public Port" og "Private Port" Veldu TCP undir "Port Type" Settu "IP Address" töluna úr "ipconfig" í reitinn undir "Host IP Address". Smelltu síðan á "Add This Settings" Settu síðan 2412 aftur í reitina undir bæði "Public Port" og "Private Port" Veldu UDP undir "Port Type" í þetta skiptið. Settu "IP Address" töluna úr "ipconfig" í reitinn undir "Host IP Address". Smelltu síðan á "Add This Settings" Og að lokum smellirðu á "Save Settings" og smellir þar á Submit. Þá ætti routerinn að endurræsast.
Page url: http://internet.is/radox/default.html?planet_ade_4000_adw_4100_aceex.html