Hugbúnaðar eldveggur
Ef þú ert með hugbúnaðar eldvegg (t.d. Norton Internet Security, ZoneAlarm, Tiny Personal Firewall o.s.frv.) þá þarftu að hleypa DC forritinu þínu í gegnum hann. Ef þú ert ekki með slíkan eldvegg þá mæli ég með því að þú setjir þannig upp.
Í flestum tilfellum þegar þú notar DC eða annað internet forrit í fyrsta skipti kemur upp gluggi sem biður þig um að annað hvort hleypa forritinu í gegn eða neita því um aðgang að internetinu. Veldu "always allow this program to access the internet" eða eitthvað álíka, þetta er mjög misjafnt eftir eldveggjum og ætla ég ekki að koma með leiðbeiningar fyrir þá alla.
En það er ekki alltaf nóg að hleipa forritinu á netið, þú þarft þá að opna port á eldveggnum handvirkt. Ástæðan er sú að eldveggir hleipa forritinu út á netið en gera ekki inngang af netinu, því til að þetta virki rétt þá verður að opna eins og þetta dæmi: TCP port 2412 direction IN/OUT fyrir skráarskipti og UDP port 2412 IN/OUT fyrir leit.
Það er ágætt að minnast á það hérna, einu sinni enn, að ZoneAlarm útgáfa fyrir 6 er þekktur vandræðagemlingur þegar kemur að DC og
það borgar sig að skipta um eldvegg. Það er ekki nóg að gera disable í ZoneAlarm heldur þarf að uninstalla honum alveg og setja upp annan eldvegg.
Hér eru leiðbeiningar á íslensku hvernig eigi að opna port á eftirtöldum eldveggjum:
Hér eru leiðbeiningar á ensku hvernig eigi að opna port á eftirtöldum eldveggjum:
(Linkarnir að neðan eru frá firewalling.com og dslreports.com)
Norton Personal Firewall 2004 eða Norton Personal Firewall
Alls ekki nota tvo eldveggi á sömu tölvu því það veldur árekstrum (sama gildir með antivirus forrit, aldrei tvö antivirus forrit), ef þú ert með eldvegg annan en windows sp2 eldveggin þá þarftu að slökkva á windows xp sp2 eldveggnum.
Page url: http://internet.is/radox/default.html?skref_2.html