Navigation:  [ DC ] Active leiðbeiningar > Skref - 1 - Router > ZyXEL >

ZyXEL Prestige 645R

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

PORTFORWARD

fyrir

ZyXEL Prestige 645R

Tengill.is

 

(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)


Þessi router er öðruvísi heldur en flestir nýlegir routerar að því leitinu til að hann er ekki með vef viðmót, þ.e.a.s. það er ekki hægt að nota internet vafra til þess að stilla hann. Heldur þarf að nota forrit sem heitir telnet. Ef þú ert með Windows XP, 2000 eða NT þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra ipconfig. (start --> run --> skrifar cmd og ýtir á enter (skrifaðu þar ipconfig og ýttu á enter.)) Ef þú ert með Windows 95, 98 eða Me þá byrjarðu á því að fara í command prompt og keyra winipcfg. (start --> run --> skrifar command og ýtir á enter (skrifaðu þar winipcfg og ýttu á enter.)) Þar sem flestir eru með WinXP þá ætla ég að láta nægja að tala um ipconfig í þessum leiðbeiningum. Ef þú ert með Win9x þá notast þú að sjálfsögðu við winipcfg þar sem ég tala um ipconfig. Skrifaðu hjá þér tölurnar í IP Address og Default Gateway. Farðu í start menu --> run --> skrifar telnet "default gateway" og ýtir á enter (skiptir út "default gateway" fyrir default gateway töluna úr ipconfig) Þá ætti að koma upp gluggi sem biður um password. Skrifaðu þar inn 1234 og ýttu á enter (Ef þetta virkar ekki þá get ég ekki hjálpað þér, sá/sú sem setti routerinn upp fyrir þig ætti að hafa þessar upplýsingar). Núna ætti að koma upp valmynd. Hérna geturðu ekki notað músina heldur verðurðu að nota lyklaborðið. Þú notar upp og niður örva lyklana til að færa bendilinn á milli valmöguleika. Að öðru leiti þá ferðu bara eftir leiðbeiningunum hérna fyrir neðan. Skrifaðu inn 4 og ýttu á enter. Í þessari valmynd á að vera lína þar sem stendur "Single User Account= ???. Spurningamerkin ættu að vera annaðhvort Yes eða NO. Ef að það stendur No þá hefur einhver mjög líklega sett routerinn upp í ákveðnum tilgangi og ekki ráðlegt að fikta í því án samráðs við þá manneskju. En ef það stendur Yes

þarna þá ýtirðu bara ESC takkann til þess að komast aftur í main menu. Þar skrifarðu inn 15 og ýtir á enter. Núna ættirðu að vera komin/n í valmynd með lista af tölum þar sem línunar eru númeraðar frá 1 - 8. Flestar línunar ættu bara að vera með 0 undir port og 0.0.0.0 undir Ip Address, þessar línur eru tómar. Það á ekki að skipta máli þó að það séu aðrar tölur í einhverjum línum. Færðu nú bendilinn upp í efstu tómu línuna. Settu 2412 undir "Port". Settu "IP Address" töluna úr "ipconfig" undir "IP Address". Færðu síðan bendilinn aftur niður í "Press Enter to....." línuna. Ýttu á Enter þar. Þá ættirðu að vera komin/n í Main Menu aftur. Þar skrifarðu 99 og ýtir á enter.

 

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?zyxel_prestige_645r.html