Navigation:  [ DC ] Active leiðbeiningar > Skref - 1 - Router > ZyXEL >

ZyXEL Prestige 650

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

PORTFORWARD

fyrir

ZyXEL Prestige 650

Tengill.is

Reyni að laga þessar leiðbeiningar seinna!

 

(Opnun á porti 2412 á router fyrir DC forrit til að verða active, einnig er hægt að nota þetta til að opna önnur port fyrir önnur forrit, þá er bara að breita port nr og nafni)


1. Til að opna port á þessum router þarf að hafa fasta ip tölu

 

2. Opnaðu þinn vafra, t.d internet explorer eða firefox.Settu inn IP tölu routersins í síðuslóðar kassann. Á myndinni fyrir ofan er

http://www.google.com þar. Settu þar í staðin IP töluna af routernum þínum. Venjulega er IP talan 192.168.1.1 eða 192.168.1.2. Ef önnur virkar ekki reyndu hina.

 

3. Þá ættir þú að vera spurður um nafn og aðgangsorð. Settu inn nafn og passa, til að komast inn í routerinn.Venjulega er notandanafnið admin og passinn 1234. Þegar þú ert kominn inn ættir þú að sjá þessa forsíðu:

 

4. Klikkaðu á NAT á miðjunni á skjánum fyrir framan þig (Advanced Setup). Núna ættir þú að sjá þessa síðu:

 

5. Það ætti að vera hakað við "SUA Only". Ef það er ekki, getur þú ekki opnað port án þess að gera miklar breytingar á þínu kerfi. Ég myndi ekki ráðleggja breytingu nema þú vitir hvað þú ert að gera. OK, ef það er hakað við "SUA Only", haltu áfram og farðu í "Edit Details" við hliðina á því. Nú ættir þú að sjá nýja síðu.

 

6. Við ráðleggjum port númer 2412 .. Settu lægsta númerið sem þú vilt í "Start Port No" boxið. Settu hæsta númerið sem þú vilt í "End Port No" boxið. Settu IP addressuna þína í "IP Address" boxið.

 

7. Ýttu á "Save" neðst á síðunni til að vista þetta. Núna ættir þú að vera kominn aftur á "Nat Settings" síðuna. Ýttu á "Apply" neðst á síðunni.

 

8. Núna er tími til að gá að eldveggnum. Er kveikt á eldveggnum? Ef ekki, þá ertu búin(n). Gáðu að því. Á aðalsíðunni undir "Advanced Setup" ýttu á "Firewall". Þetta færir þig á nýja síðu. Á síðunni, ýttu á "Config". Þú ættir að sjá eitthvað þessu líkt:

 

9. Ef "Firewall Enabled" boxið er með haki í þá er eldveggurinn á. Ef ekki, þá þarftu ekki að gera restina af þessum leiðbeiningum. Haltu áfram og klikkaðu á "Back" hnappinn neðst á síðunni. Að gera þetta færir þig á enn eina síðuna. Ýttu á "Rules Summary" til að komast á næstu síðu.

 

10. Núna ættir þú að vera á "Lan to Wan" síðunni, en ekki "Lan to Lan" síðunni. Ýttu á eitt af bláu númerunum. Þetta færir okkur á enn eina síðuna.

 

11. "Source Address" og "Destination Address" svæðin ættu bæði að hafa "Any". Þetta leyfir það að opna port. "Action for Matched Packet" ætti að vera "Forward". Skoðaðu "Available Services" boxið. Sérðu portið sem þú ætlar að opna þar? Ef þú gerir það klikkaðu til að velja það, notaðu síðan ">>" hnappinn til að færa það í "Selected Services" boxið. Ef þú fannst þitt port þar, farðu að 14. stigi, slepptu 12 og 13. Ef ekki, þá þarftu að búa það til. Ýttu á "Edit Available Service" til að opna enn eina síðuna.

 

12. Á þessari síðu ýttu á eitt af bláu númerunum sem fylgir auðri línu. Þá kemur enn ein síðan.

 

13. Þetta ætti að passa við það sem þú valdir fyrr.2412 . Til að kalla portið eitthvað settu það í "Service Name" boxið. Veldu port típuna í "Service Type" listanum. Ef þú ert að setja inn mörg port númer, hakaðu við "Range" í "Type" valinu. Ef það er eitt port, veldu "Single". Settu port númerið í "Port Number" boxin. lægsta portið ætti að vera til vinstri og hæsta til hægri. Ef þú ert að setja eitt port inn, hafðu sama númer í báðum boxunum. Þegar þú ert búinn, ýttu á "Apply" Núna ættir þú að sjá "config-ið" þitt í þessari töflu. Ef það er "Apply" hnappur neðst á skjánum, klikkaðu á hann. Ef þér finnst þetta hafa virkað, haltu áfram og klikkaðu á "Back" hnappinn neðst á skjánum.

 

14. Núna eigum við að vera komin aftur á "Services" síðuna. Í "Available Services" boxinu ættirðu að sjá það sem þú bjóst til. klikkaðu á það til að velja það og notaðu síðan ">>" hnappinn til að færa það í "Selected Services" boxið.

 

15. Ýttu á "Apply" neðst á skjánum. Núna ættir þú að vera aftur á "Rule Summary" síðunni.Þú átt núna að geta séð portið þitt þar. Ef það er þar, ýttu á "Apply" neðst á skjánum. Ef ekki, þá verður þú að byrja upp á nýtt á númer 12.

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?zyxel_prestige_650.html