Faxarnir
Hljómsveitin Faxarnir var stofnuð af nokkrum flugmönnum Flugfélags Íslands í nóvembermánuði 2007. Faxarnir hafa verið iðnir við kolann allt frá stofnun. Hafa t.a.m. spilað á hinum ýmsu uppákomum tengdum Flugfélagi Íslands, sem og öðrum aðilum. Árlegur viðburður hefur verið hið sívinsæla sveitaball, bæði norðan og sunnan heiða. Það féll reyndar niður í ár sökum anna við plötuupptökur en í staðinn verða haldnir veglegir útgáfutónleikar í Tjarnarbíói 24.11.2012 sjá nánar hér .
Árið 2010 var samið lagið Ljós í myrkri til styrktar langveikri dóttur vinnufélaga Faxanna, þeirrar Elísabetar Eggertsdóttur og Frímanns Svavarssonar. Stúlkan lést nokkrum dögum áður en lagið kom út og hét hún Fanney Edda. Flugfélag Íslands styrkti söfnunina veglega, Stúdíó Sýrland lánaði hljóðver sitt ásamt hljóðmanni og gaf verulegan afslátt af fjölföldun. Var Páll Óskar Hjálmtýsson fenginn til að syngja. Vakti lagið og söfnunin athygli landans og safnaðist rúmlega ein milljón krónur! Var upphæðin veitt Lyngási sem erþjónustustofnun Áss styrktarfélags fyrir langveik og fötluð börn, þar sem Fanney Edda dvaldi oft. Enn er lagið spilað reglulega í útvarpi. Hægt er að nálgast diskinn og um leið styrkja Lyngás hér.
Lagið Fluffulíf, sem finna má á nýjum diski Faxanna, var svo notað í tengslum við söfnunina Á allra vörum 14. september s.l., þar sem lög voru ýmist keypt inn eða út úr dagskrá Rásar 2. Er óhætt að fullyrða að lagið hafi verið eitt mest spilaða lag landsins þann daginn og söfnuðust ófáar krónur út á það. Hægt er að sjá myndband með laginu hér http://www.youtube.com/watch?v=ENg6NDu-x6c
Faxarnir hafa spilað hin ýmsu lög, af hinum ýmsu gerðum, í gegnum tíðina og er engin tónlistarstefna eða ismi heilagur. Fljótlega eftir stofnun var farið að frumsemja lög og nóvember árið 2009 var ákveðið að slá til og taka þau upp. Var Kristinn Sigurpáll Sturluson frá Stúdíó Sýrlandi fenginn í það verkefni. Kappinn sá er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að upptökum og málum þeim tengdum og því mikill fengur fyrir hljómsveitina. Þorsteinn Faxi, Mix var Kristni til halds og trausts. Þar sem mikið verk var fyrir höndum og sífellt fleiri ný lög að bætast í safnið, ásamt því að upptökur fóru fram í takmörkuðum frítíma annars önnum vafinna manna, drógst verkið á langinn og var ekki lokið fyrr en í ágúst 2012. Hljóðblöndun, hönnun og allri eftirvinnslan lauk nú í nóvember 2012. Diskurinn inniheldur 13 frumsamin lög af öllum stærðum og gerðum, allt frá gleðipoppi, reggae, diskó, köntrí að þungarokki ásamt fönki. Sem sagt eitthvað fyrir alla. Diskurinn ber nafn hljómsveitarinnar og kemur út þriðjudaginn 13.11. Diskinn má nálgast hér á síðunni.
Hljómsveitin hefur alltaf haft það að leiðarljósi að skemmta sér og öðrum og eru lykilorð hennar "Þetta eru bara einfaldir hljómar!"