5.11.2012
Ljós í Myrkri

Verkefnið Ljós í Myrkri er verkefni sem við komum af stað í kjölfar þess að vinnufélagar okkar, þau Elísabet og Frímann, misstu dóttur sína af ólæknandi sjúkdómi.
Lagahöfundar er þeir Gunnar Guðmundsson (lagahöfundur) og Vignir Örn Guðnason (textasmiður).
Páll Óskar Hjálmtýsson syngur við undirspil Faxanna.
Lagið gáfum við út til styrktar félaga okkar. Ágóði af sölu lagsins átti að renna til þeirra og Lyngáss. En Elísabet of Frímann óskuðu þess að allur ágóði lagsins rynni til Lyngáss.
Textinn fjallar um raunir foreldris sem er á leið á spítalann að hitta veikt barnið sitt sama hvernig viðrar.
Foreldrið gerir sér grein fyrir alvarleikanum en fyllir barnið engu að síður bjartsýni og barnið veitir foreldrinu von.

Veikindunum í textanum er líkt við íslenska veðrið og árstíðirnar með öllum sínum duttlungum. Inntakið í laginu er að það er ljós í myrkri og táknar ljósið annað hvort lækningu eða upprisu. Textann má sjá hér.
Samtals safnaðis yfir 1.000.000 kr. Sjá nánar á síðu söfnunarinnar. Hægt er að hlusta og kaupa lagið á síðunni tonlist.is