Navigation:  [ DC ] Byrjenda Hjálpin > Notkun >

Notendalistinn

Print this Topic Previous pageReturn to chapter overviewNext page

Notendalistinn í DC forriti

 

Í notendalistanum (Userlist) er að finna alla þá notendur sem eru tengdir á þeim tengipunti, en það er mikið af upplýsingum sem eru í honum við hvern notanda. Venjulegir notendur sjá minna í þessum lista en stjórnandur, það fer eftir tengipunt hvað notandi sér. Það er minna álag fyrir tengipunta að sýna sem minnst. En við venjulegar kringumstæður sér notandi hvort annar notandi sé Virkur/Óvirkur, hvað hann er að deila miklu, e-mail, lýsingu á honum (ef það er einhver, venjulega bara bull), tengigetu og Tag (fer betur í tag hér í 2. hluta). Stjórnendur sjá miklu meira eins og IP, host, hvað forritið stiður og margt annað um forritið og svindl lýsingu ef forritið hefur fundið einhvern sem er að svindla eða brjóta reglur tengiðuntsins. Einnig er einhvað meira sem ég nenni ekki að fara útí.

 

1. hluti - Táknmyndirnar

2. hluti - Tag

 


1.hluti - Táknmyndirnar


Notenda icon

Í dag er notast aðallega við tvær gerðir af notenda iconum en samt í mörgum útfærslum. Gamla aðferðin með köllunum og nýja aðferðin með tengi iconum.

Báðar þessar gerðir notast við nokkrar af sömu skilgreiningum:

 

Lykill = Það mun þá vera stjórnandi á tengipuntinum, oftast nefnt op (operator)

Veggur eða X = Sá notandi er þá óvirkur (passive)

Grár = Sá notandi er þá stilltur á Away (er ekki við tölvu)

Blár = Blár kall eða blár hringur með haki í þýðir að viðkomandi hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 

Kallarnir

 

Þessi kall þýðir stjórnandi

Þessi kall þýðir stjórnandi sem hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

Þessi kall þýðir stjórnandi sem er óvirkur (passive)

Þessi kall þýðir stjórnandi sem er óvirkur (passive) og hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

Þessi kall þýðir venjulegur notandi

Þessi kall þýðir venjulegur notandi sem hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

Þessi kall þýðir venjulegur notandi sem er óvirkur (passive)

Þessi kall þýðir venjulegur notandi sem er óvirkur (passive) sem hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 

 

Tengi

 

Stillanleg

Modem - Viðkomandi er með stillt á Modem og er þá að líkindum með modem eða hefur gleymt að stilla tengigetu.

ISDN - Viðkomandi er með stillt á ISDN og er þá að líkindum á ISDN línu

Satelite - Viðkomandi er með stillt á Gerfihnattabúnað eða örbylgju og er þá að líkindum með þannig tengingu.

Wireless - Viðkomandi er með stillt á Þráðlaust og er þá að líkindum með þráðlaust net (Ekki innranet)

  ADSL - Viðkomandi er með stillt á ADSL og er þá að líkindum með ADSL

Cable - Viðkomandi er með stillt á Breiðband og er þá að líkindum með breiðbands tengingu.

  LAN T1 og T3 - Viðkomandi er með stillt á LAN T1 (10 - 40 mb/s) eða T3 (100mb/s) og er þá að líkindum með T1 eða T3 hraða á línu. T1 - T2 og T3 á einungis við um ljósleiðara tengingar.

 

Óstillanleg - koma sjálkrafa þegar við á

 Stjórnandi - Op,Master,Netfounder,Bottar og Robottar

 File Server - Viðkomandi hefur verið tengdur í meira en 2 tíma með yfir 2GB og búinn að uploada yfir 200mb (líklega úrelt)

Fireball - Viðkomandi er að uploada (senda frá sér) á yfir 100kb/s á tilteknum tengipunt.

Óþekkt - Viðkomandi er með ekkert eða óþekkta tengigetu skilgreiningu.

 

ICON með viðbótum, tek stjórnenda iconið sem dæmi en viðbótin kemur á öllum iconum

 Stjórnandi - Away (viðkomandi er þá ekki við tölvuna)

 Stjórnandi - hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 Stjórnandi - Away- hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 Stjórnandi - Passive (Óvirkur)

 Stjórnandi - Passive (Óvirkur) - Away

 Stjórnandi - Passive (Óvirkur) - hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 Stjórnandi - Passive (Óvirkur) - Away - hefur tengst þér á einhvern hátt eða þú honum

 


2. hluti - Tag


 

Í Tag er að finna upplýsingar um notandann

Tag á DC++ lítur svona út <++ V:0.674,M:A,H:0/1/0,S:2> þetta er standartinn.

Íslensku DC forritin dDC og DCf eru með viðbót í tag. DS,SM,FS og RA sem er ekki vel tekið í erlendis. Það tekur meira í vinnslu fyrir höbbinn og svo þarf að breita forritum í að taka tvo stafi í stað eins. PtokaX höbba forritið hleipir t.d. þessum forritum ekki inn.

Og fleyrri ástæður eru afhverju það ætti að sleppa þessu, ætla ekki að fara útí það hér.

Tag lítur svona út á DCf++: <DCf++ V:7.5,M:P,H:2/1/0,S:4,DS:5,SM:2,FS:3,RA:0,22>

Fremst er nafnið á forritinu = DCf++

V = hvaða útgáfa af forritinu = 7.5

M = mode = hvort aðillinn sé virkur (A=Active) eða óvirkur (P=Passive) = M:P = mode:passive = óvirkur

H = hub = hvað aðillinn er á mörgum höbbum skilgreint í user/vip/op = H(hub):2(user)/1(VIP)/0(OP) = hann er hvergi stjórnandi en hann er á einum höbb sem VIP og tveim höbbum sem venjulegur notandi.

S = slots = hvað hann er með opin mörg hólf (slot) = S(slot):4 = hann er þá með 4 hólf opin

O = Stjórnandi á x mörgum tengipunktum

L = Er að takmarka hraðan á uploadi í x mikið.

DS = download slots = hvað hann er að niðurhala á mörgum hólfum = DS(download slots):5 = hann er að niðurhala á 5 hólfum.

SM = segment max = hvað viðkomandi er með stillt á hvað hann getur náð í sömu skránna frá mörgum í einu = SM(segment max):2 = hann getur þá náð í sömu skrá frá 2 í einu.

FS = free slots = laus hólf = hvað viðkomandi er með mörg laus hólf = FS(free slots):3 = hann er þá með 3 laus hólf.

RA = ratio = hlutfall á niður og upphali = RA(ratio):0.22 = hann er þá búinn að niðurhala miklu meira en upphala. Ef viðkomandi væri með RA:1,0 þá væri hann með jaft hlutfall á niðurhali og upphali.

 

Til eru fleyrri gerðir sem sjást ekki á þessum tveim dæmum eins og L=Limit ef viðkomandi er að takmarka ul hraðan hjá sér og O=einhvað sem ég er ekki með á hreinu.

 

 

 

 

 

 


Page url: http://internet.is/radox/default.html?notendalistinn.html