![]()
Tækjastika ApexDC++ 1.0b4 (Með öllum iconum inná stikunni)
| 1.Tengipunktalistar (Public hub list) Opnar glugga með lista yfir tengipunta. Það eru til margir erlendir listar yfir tengipunta en best er að nota lista deiling.net til að fá bara lista yfir íslensku tengipuntana. Til að vista inn slóð á tengipunta er farið í Stillingar - Niðurhal - Stilla tengipuntalista, þar setur þú inn slóðina t.d. http://www.akoladex.com/PublicHubList.config.bz2 Þá ætti listinn að birtast þegar þú smellir á Tengipuntar takkann. Þarna getur þú séð hvaða tengipungtur er með flesta notendur og stutta lýsingu á tengipuntnum t.d. hvað er lámarks deilistærð til að tengjast honum. Gott er að hægri smella á einhvern tengipungt og velja "Bæta við í uppáhald" þá vistast tengipunturinn í forritinu þínu undir. |
| 2. Tengjast beint.. (Quick Connect..) - Opnar glugga sem þú getur sett inn slóð á tengipunkt og tengst beint |
| 3. Tengjast á ný (Reconnect) - Ef þú smellir á þennan takka þá slekkur forritið á tengipuntnum sem þú ert með opið á (aðeins þeim sem þú sérð) og tengist svo á ný. |
| 4. Fylgja tilfærslu (Follow Last Redirect) - Tengipuntar endurvarpa stundum notendum á aðra slóð (addressu) en þeirri sem þú ætlaðir að tengjast, gæti verið útaf breitingum eða lagfæringum, eða þú uppfillir ekki skilyrði tengipuntsins. Þessi takki fylgir síðustu tilfærslu sem var gerð á tengipuntinum. |
| 5. Tengipungtar (Favorite hubs) - Þessi takki opnar glugga yfir þá tengipunta sem þú hefur vistað. Þegar þú ert búinn að vista einhvern tengipungt í þessum glugga þá getur þú set hak í kassann fyrir framan slóðina en þá tengist forritið sjálkrafa þeim tengipungt þegar forritið er ræst. Ef ekkert hak er þá ræsist ekki sá tengipungtur sjálfkrafa. Þú getur smellt á Nýr til að setja inn tengipungt sem þú ert með slóðina á. Ef þú þarft að setja lykilorð við tengipungtinn (lokaður tengipuntur, þú ert skráður notandi VIP eða OP eða annað sem þarf lykilorð við) þá velur þú þann tengipungt og smellir svo á Stillingar, þar færðu upp glugga sem þú setur notendanafn þitt og lykilorðið. |
| 6. Vinir (Favorite users) - Þessi takki opnar glugga yfir notendur sem þú ert búinn að vista sem uppáhalds notendur. Ef þú ert með vini vistaða hér þá er hægt að láta DC tilkinna þegar það er tengt og þegar það aftengist, líka er hægt að breita litum á fontinu hjá þeim til að sjá betur þegar þau skrifa á main. Einnig er hægt að sjá hvar og hvenar það sást síðast. En aðal ástæðan fyrir þessum fídus er að það er hægt að gefa þessum vistuðu notendum auto slot, með því að haka í boxið fyrir framan nickið þeirra. Þannig hafa þau óhindraðan aðgang að skránnum þínum. |
| 7. Nýlegir tengipunktar (Recent hubs) - Opnar glugga með þeim tengipunktum sem þú hefur farið á |
| 8. Biðröð (Download queue) - Þessi takki opnar glugga yfir þær skrár sem þú ert að reyna ná í frá öðrum. Hérna getur þú líka séð hvað það er búið að niðurhala mikið af hverri skrá, þú getur stillt forgang skráa, leitað af fleyrri notendum með skránna, fjarlægt skrár úr biðröð og margt annað. Hægri klikkaðu bara á möppu eða skrá til að fá valmyndina |
| 9. Sóttar skrár (Finished Downloads) - Þessi takki opnar glugga yfir þær skrár sem þú ert búinn að ná í síðan þú ræstir DC forritið. Það eru allar upplýsingar um skrárnar sem þú varst að sækja t.d. klukkan hvað, frá hverjum, af hvaða höbb og margt annað. Þetta hreinsast í hvert skipti sem þú slekkur á forritinu, getur líka hægri klikkað og hreinsað sjálfur. |
| 10. Opna 'Tilbúið' möppuna (Open downloads directory) - Opnar möppuna þar sem allt sem þú hefur niðurhalað er |
| 11. Upphals biðlisti (Upload queue) - Þessi takki opnar glugga yfir þær skrár sem aðrir eru að reyna ná í frá þér. Hverjir eru að bíða og hvað þeir eru að reyna ná í, hvað þeir eru búnir með mikið af skránni, hvað þeir eru búnir að bíða lengi og margt annað. Gott er að gefa þeim slot sem eru búnir með 99% af skránni svo þeir hangi ekki á þessu 1% eða svipað litlu. |
| 12. Sendar skrár (Finished uploads) - Þessi takki opnar glugga yfir þær skrár sem aðrir eru búnir að ná í frá þér síðan þú ræstir DC. Svipað og Sóttar skrár, bara upplýsingar um sendar skrár. |
| 13. Leit (Search) - Þessi takki opnar glugga með leitinni, þar sem þú leitar að skrám hjá öllum á höbbnum sem þú ert tengdur á. Hægt er að velja leitarskilyrði eins og hvað skráin á að vera stór, hvaða gerð skráa og einhvað meira. Þarna er hægt að velja einnig leit bara hjá þeim sem eru mér opin slot. Hakaðu við alla höbba sem þú ætlar að leita á ef það er ekki þar fyrir. Svo þegar þú byrjar að leita að einhverju kemur listi yfir niðurstöður, nafn skráar og hvað það eru margir með þá skrá og margt annað. Til að sækja skránna getur þú 2 klikkað á viðkomandi skrá. En góð regla er að hægri klikka á skránna og fá skráarlistann hjá þeim sem er með skránna og athuga hvort það fylgi fleyrri skrár með t.d. Nero.exe þá gæti verið serial.txt í sömu möppu eða bíómyndcd1.avi og þá er bíómyndcd2.avi væntanlega í sömu möppu ef hún er á fleyrri en einni skrá. Þá hægri klikkar maður bara á möppuna og sækir hana alla með öllu innihaldi hennar. |
| 14. Sjálfvirk leit í skráarlistum (ADL Search) - Þessi takki opnar stillinga glugga með nöfnum á skrám sem þú villt sjá strax þegar þú nærð í skráar lista hjá einhverjum. Til að stilla inn leitarorð þá klikkar þú á Nýr (New) þá færðu upp glugga sem þú stillir eftir þörfum. Stjórnendur höbba nota þetta mikið til að þurfa ekki að leita að bönnuðum skrám í öllum listanum, adl search tekur þá frá í eina möppu allar skrár sem þú varst búin að setja leitarskilyrði fyrir t.d. porn, program files eða hvað sem er sem er bannað. |
| 15. Leitarspegill (Search Spy) - Þessi takki opnar glugga sem sýnir hvað allir á tengipuntinum eru að leita að frá því að þú opnaðir Leitarspegilinn. Efst kemur hvað flestir eru að leita að. |
| 16. Bandvíddarmælir (Network statistics) - Þessi takki opnar glugga sem sýnir bandvíddina hjá þér á niður og upphali. |
| 17. Opna skráalista (Open file list) - Þessi takki opnar win-explorer með möppu sem allir skráarlistar sem þú hefur sótt eru í. Þú velur þá lista sem þú vilt skoða aftur og 2 klikkar á hann til að opna. |
| 18. Stillingar (Settings) - Þessi takki opnar aðal stillinga glugga DC forritsins. |
| 19. Minnisblokk (Notepad) - Þessi takki opnar glugga sem þú getur skrifað í og geymt. |
| 20. Uppfæra skráalista (Refresh filelist) - Uppfærir skráarlistann þinn með því að kennileita allar skrár sem þú hefur bætt inn í deilinguna þína svo aðrir geti sótt það. |
| 21. Fjarverandi (AWAY) - Sýnir þig vera fjarverandi (Þegar takkinn er niðri) annars ertu við. |
| 22. Slökkva á tölvu (Shutdown computer) - Slekkur á tölvu, annars er hægt að stilla aðgerðir í Settings - Experts only. |
| 23. Hraðatakmörkun (Limit transfer speeds) Takmarkar hraðan á upphali (Ef takkinn er niðri) annars engin takmörkun. Hraðatakmörkunin er stillt í Settings - Limits |
| 24. Athuga með uppfærslu (Update check) - Athugar hvort uppfærsla sé fyrir hendi |
| 25. Hljóð Af/Á (Disable sounds) - Slekkur á öllu hlóði frá forritinu (Ef takkinn er niðri) annars ekki. |
| 26. Media tækjastika (Media Toolbar) - Opnar Media tækjastikuna (Ef takkinn er niðri) annars er hún ekki sýnileg. |
Page url: http://internet.is/radox/default.html?taekjastikan.html